En já svona fyrir utan ţetta ljósabekkjadćmiUnna
Þá hefur gengið svona lala með matarræðið en mætt í alla tíma og tekið vel á. Enda líður manni langbest þannig er ég núna að komast að (því jú ég hef aldrei verið fyrir neina leikfimi eða æfingar). Nú eru bara 5 kg niður í fyrstu 10 kílóin mín. Vonandi tekst það á einum mánuði :) og ef það tekur samt lengur þá er það bara líka allt í lagi svo lengi sem ég er að hreyfa mér, finnst mér allavegana.Eitt samt sem ég er að ströggla svolítið mikið við er matarræðið... fyrsta lagi þá kann ég ekkert að elda... og ekki getur maður víst lifað á hráu grænmeti eða einhverju þannig og í öðru lagi ... veit einhver um bara eitthvað námskeið eða eitthvað þar sem svona fullorðið (ég er tvítug, finnst ég vera orðin hræðilega gömul og guggin eitthvað) fólk getur lært að elda bara hollan og góðan mat..
Þegar ég segist ekki kunna elda þá er ég að meina að ég get ekki einu sinni soðið hrísgrjón skammlaust
Vil ekki geta notað þetta fyrir afsökun lengur !! Þannig ef þið vitið um eitthvað þá endilega sendið mér póst eða bara já kommentakerfið virkar líka ágætlega :)
Kveðja Unna
Ljósabekkjaćvintýri!Unna
Ég ákvað fyrr í kvöld að skella mér í ljós með vinkonu minni á sólbaðstöðina Ibiza. Hún nefninlega vann sér 10 tíma ljósakort þar á einhverri útvarpsstöð.Þetta byrjaði nú allt mjög sakleysislega, stelpan í afgreiðslunni átti í smá örðuleikum við að stimpla inn kortið og við enduðum með því að þurfa bíða í all langa stund eftir bekk, samt höfðum við nú hringt á undan okkur og pantað :)
Enjá to the point.. Ibiza er semsagt ljósastöð sem býður upp á það að geta horft á sjónvarp meðan þú liggur í bekknum með sérstökum "gleraugum"

Ég hafði nú komið þangað áður og ekkert mál sko þannig ég var ekkert að stressa mig á hvort ég þyrfti ekkert að kunna á þessa "nýtækni" ... Ég byrja semsagt á því að leggjast inn í þessa græju og sé að það er bara stillt á útvarpið.. hélt nú ekki og vildi fá að setja á Sirkus þar sem ég vissi að Supernatural væri í sjónvarpinu og hver er ekki til í að liggja og slappa af slefandi yfir sætu gaurunum þar... wrarrrrr...
Svo var það þannig að rétt áður en ég næ að teygja mig í fjarstýringuna að afruglarnum þá breytist myndin af skjánum og kemur upp eitthvað ljósabekkja show í BOTNI, mér brá svo all svakalega að ég skaust með hausinn upp (já með gleraugun á mér) beint upp í bekkinn svo náði ég nú aðeins að róa mig og ákvað að reyna laga þetta því þetta var svo hátt stillt að það hefði ekki komið mér á óvart þó tónlistinn hefði heyrst útá götu og já btw þetta var svona þvílíkt ljósabekkjalag með myndabandi af einhverjum þvengmjóum píum að glenna sig í litlum bikiníum og textinn hljómaði álíka gáfulegur-----> "toooouuuuch meeeeee" etc....
en ekkert virkaði því miður ég meira segja fór úr bekknum og reyndi allt annað en að henda helvítis afruglarnum í gólfið.. þegar ég loksins fattaði að það var eitthvað takka dæmi í ljósabekknum sem maður gat fengið upp menu en þangað til ég fattaði það sem var btw eitthvað um 10 ´MÍNÚTUR þe. helmingurinn af tímanum mínum þá lá ég þarna með "tooooch meeeeeeeeeeeeeeeee" lagið á fullu...
svo þegar ég gat skipt og sett á einhverja sjónvarpsrás.. þá var í ekkert í nema fréttirnar á stöð eitt... og eitthvað bull á skjáeinum.. var ekki einu sinni stöð 2 !
Kannski er ég bara eitthvað gamaldags... en gætu ekki verið smá leiðbeiningar ? eða þú bara einn lítill miði sem stæði á "ýttu á þennan takka fyrir menu" ????
Vinkona mín var ekkert klárari en ég hehehe.. hún reyndar gat ekki einu sinni skipt yfir á sjónvarpið heldur var hún föst þarna með þetta vibba lag í gangi í BOTNI í 15 mínútur þangað til hún fattaði loksins hvernig væri hægt að LÆKKA !!!!! HAHA
Ég er nú líka bara pæla hvort þetta hafi bara verið við tvær að vera ljóskur eða hafa fleiri slæma reynslu af svona græjum ? :P
kv. Unna með kúlu á enninu
5 kíló farin!Unna
yay!!!! partý tonæææt! :P keypti mér nýja skó í tilefni þessa áfanga og full af bjartsýni á framtíðina.. eða eitthhvað svoleiðis :Dble
Hungry Girl leikur :)Unna

Wack A Snack
Klikkið á mynd til að komast að leik, ágætt þegar maður er heima veikur og hefur ekkert betra að gera :P
tataaa
Enn veikindi og slen!!Unna
OHH mig eina! það eina sem ég er búin að vera gera seinustu 2 daga er að liggja uppí sófa með sorgarsvip yfir ástandi mínu, og ástandinu á stofuborðinu allt fullt af snýtipappír. En já ég er semsagt enn veik og hef ekki getað drattast með minn breiða rassi í ræktina og er með þvílíkt samviskubit yfir því. Þvílíkur aumingjaskapur er ég búin að vera hugsa um sjálfa mig... EN ef ég hugsa þetta aðeins öðruvísi, t.d. ef ég væri einhver vinkona mín hehe þá myndi ég sko segja við hana að hún ætti EKKI að vera með samviskubit yfir þessu og segja henni að hún ætti að taka því rólega þangað til hún treysti sér í vinnuna og ræktina.. Ekki vera reka á eftir sjálfum sér, henni gæti nú bara versnað :)EN því miður þá er ég ekki vinkona mín.. ótrúlegt en satt..
Er semsagt búin að missa af tveimur tímum og ætlaði nú líka í jóga á fimmtud. en komst víst ekki :(
Ætla reyna hugsa um þetta sem smá hindrun á vegi mínum í átt að kjörþyngd heldur en einhverju öðru... verra.. blah :P
Má maður ekki annars fá sér kleinuhring þegar maður er veikur ?
Óttast að ég sé nú búin að þyngjast eitthvað síðan ég veiktist.. maður er víst þetta HALT heh las það einhversstaðar á einhverju bloggi.
H = hungry
A= angry
L= lonely
T= tired
ohh já ég er hölt and as sick as a dog! vona bara að ég komist í vinnuna á morgun.. seinasta helgin mín þarna með þessum börnum...
nóg í bili
bumban út!
veikindi og slenUnna
ef það er eitthvað sem ég þoooli ekki þá er það að vera veik! er búin að vera með þrálátan hósta og hálsbólgu og bara allt beinverki og hausverki, búin að vera bara hálfdofin samt fara í vinnu og dugleg að fara í ræktina :) er einmitt að fara leggja af stað núna, en já fór s.s. í tíma á mánudaginn og strengirnir sem ég fékk eftir þann tíma ! er meira segja með hassperrur í rassinum hehe :D er búin að vera svona lala dugleg að borða hollt, en sérstaklega ódugleg á mánudaginn en þá var snarlað á óhollustu fram eftir kvöldi, erfitt að standast freistingar stundum.En um helgina þá fór í göngutúra, og einn göngutúr með mamí og hundinum hennar, hann er mesta dúllus í heimi! alger óviti ennþá samt :)
anyways
seinna fólk
Nýr dagur !Unna
jæja tókst að rífa mig uppúr þessari neikvæðni sem ég var í gær! líður mikið betur í dag, skellti mér í ræktina snemma í morgun og fór svo í yóga og í gufubað eftir. Ofboðslega líður manni vel eftir svona :) Algert dekur.allavega vildi ég líka segja að það er voða gaman að sjá komment frá ykkur (Sem eruð að skoða síðuna mína)
nóg í bili
bumban kveður!
Miđvikudagur.....Unna
Sæl, einhver þreyta í mér í dag, skellti mér samt í yógatímann í gær sem var ágætur, kannski betri næst, og svo var tími í dag, mætti vel á undan og fór á hlaupabrettið í 20mín áður, og svo var fundur, matarræðið og annað, svo fór ég í tækjasalinn í svona 30 mín og leið bara all vel með sjálfa mig! ójá :) svo var komið heim og fékk mér mexíkanskan í hádeginu, 1 kjúklingabringa slatta af grænmeti og 2 tortillur :) og er líka aaaaaalltof södd núna það verður bara salat í kvöldmatinn :)Annars gengur bara vel, kallinn er bara taka soldið mikið af mínum tíma núna og er líka ekki alltof hvetjandi :( en ég er að gera þetta fyrir sjálfa mig og það stoppar mig ENGINN í því!!!
:D:D:D:D:D:D:D:D
nóg í bili
l8er
Ekki nógu gottUnna
+100 g !! ætla passa mig betur á næstunni, fór í ræktina áðan og svo í kringluna og fékk mér léttjarðaberjaboozt, ekki jafn gott og venjulegt en ágætt samt, svo er bara vinna á eftir og ætlum svo að kíkja í bíó í kvöld :) verður gaman, ekkert popp samt! hehe :) Er svo að pæla í að kíkja á Jógatímann á morgun, hann er reyndar frekar snemma (fyrir mig hehe) en hann er klukkan 9:30!
allavega
bumban út :)